71. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, föstudaginn 31. maí 2019 kl. 12:50


Mættir:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 12:50
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 12:50
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 12:50
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 12:50
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 12:50
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 12:50
Smári McCarthy (SMc), kl. 12:50

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Þorsteinn Víglundsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 12:50
Fundargerð 70. fundar var samþykkt.

2) 796. mál - almenn hegningarlög o.fl. Kl. 12:50
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu með atkvæðum allra viðstaddra. Allir viðstaddir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálit með breytingartillögu, auk Þorsteins Víglundssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar skv. heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda.

3) 52. mál - virðisaukaskattur Kl. 12:55
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu með atkvæðum allra viðstaddra. Óli Björn Kárason, Smári McCarthy, Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Silja Dögg Gunnarsdóttir skrifuðu undir nefndarálit meiri hluta með breytingartillögu, auk Þorsteins Víglundssonar skv. heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda.

4) Önnur mál Kl. 13:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:00